Ágústmyndir 2011 í dagatalinu

Bergsveinn Norðdahl er ljósmyndari beggja minni mynda í ágúst 2011. Umræddar myndir, ásamt fleirum, voru sendar í ársskýrslu Svifflugfélagsins fyrir nokkrum árum.

Það hefur komið í ljós að þrír félagsmenn tóku myndir frá sama sjónarhorni á Reykjavíkurflugvelli og tveir tóku ljósmyndir af sama viðfangsefni á Sandskeiði. Allar myndirnar voru í sjálfu sér ómerktar. Því fór af stað ruglingur sem leiðréttist góðfúslega hér með.

Óska honum til hamingju með flottar myndir og þakka fyrir góð viðbrögð um að leysa þetta mál.

 

Kveðja,

Ída