Leiðist þér?

 

Það eru vissulega nokkrar vikur í sumarið en menn eru minntir á aðalfund þann 27. þessa mánaðar og síðan er nóg að gera í Skerjafirði. Allt sem þarf er að mæta. Einar Ragnars. telur næg verkefni fyrir þá sem vilja. Þriðjudags- og fimmtudagkvöld eru kjörin í þetta, sem og laugardagarnir. Með fylgja nokkrar myndir teknar í dag.

Það er lengi hægt að dúlla við eina.

Spáð og spekúlerað.

Vængurinn kominn á ,,snú-snú".

Þessi fer ekki langt í bili. 

Karl Norðdahl að laga glugga úr turnbíl.

Alexander Thor Kristjánsson stendur hjá.