Það hefur ræst úr veðrinu

Við flugum þriðjudags- og miðvikudagskvöld, þ.e. 9. og 10. júní. Núna seinnipartinn gæti orðið gott svifflugsveður, belgingur.is er ágætis vefur til að skoða spána.

Nýr nemi Orri Þór er mættur á svæðið. Alltaf gott að fá efnilega krakka. Ég sakna þess pínulítið að sjá ekki fleiri svifflugskonur hér.

Fismenn sem komu við í gær, sögðu stúlkurnar í svifvængjunum og hafi mikinn áhuga á að prufa svifflugið. Það líst mér vel á, ég held að ólofaðir svifflugmenn myndu þá flykkjast í flug, bara að það sé ekki hinu megin á heiðinni.

Hér sést skírteinishafi # 153.

 















Kveðja, Ída