Íslandsmót í Svifflugi 2011 á Hellu

 


Eins og ekki hefur farið fram hjá neinum er nú spáð rigningu næstu daga þannig að við frestum keppni á Íslandsmóti í svifflugi þangað til veður lagast. Langtímaveðurspár gefa fyrirheit um nokkra góða daga seinni hluta næstu viku.

Mótið verður hins vegar sett á morgun laugardag kl 10 á Sandskeiði. Þar gefst tækifæri fyrir mótstjórn og keppendur að bera saman bækur sínar.

mbk

Hólmgeir