Upplýsingar á vefnum

Ágætu félagar.

Loksins er búið að uppfæra vefinn. Liðsskipan og gjaldskrá sumarsins 2013 eru komnar inn. Einnig er búið að uppfæra flug ársins 2012 ásamt skuldastöðu í ársbyrjun. Eins og undanfarin ár er stefnt að því að uppfæra flug og skuldastöðu reglulega.

Með óskum um gott svifflugsumar (ekki veitir af eftir það sem á undan er komið).

Friðjón.