Þing norrænna svifflugmanna var haldið á Akureyri um síðustu helgi.
Yfir 20 fulltrúar frá norðurlöndum mættu til samráðs um málefni 
svifflugs. Einnig kom forseti breska svifflugsambandsins sem 
gestafyrirlesari.
Rætt var um kennslu- og námskeiðahald, öryggismál, réttindamál og 
reglugerðir, mótahald, loftrými og starfsemi svifflugklúbba en 
svifflug er víðast stundað á íþróttafélagsgrunni og er starfsemin 
rekin að mestu í sjálfboðavinnu.
Á Íslandi er svifflug stundað á Sandskeiði og Meðgerðismelum og fengu 
fundarmenn tækifæri á föstudaginn að fljúga svifflug um Eyjafjörðinn 
í góðu veðri og flugskilyrðum. Erlendu gestirnir voru hæstánægðir með 
þingið og góðar mótttökur.
Myndin sýnir þátttakendur skoða hið glæsilega flugsafn Akureyrar.
  
 
 
 
    
    
