Laugardagskaffi

Ívar hjá félagi vélflugmanna hafði samband og hvatti svifflugmenn til að koma í laugardagskaffi í ,,Letigarð" á laugardögum. Hann mætir upp úr klukkan tíu og setið er til tvö eða þrjú. Ívar lagði áherslu á að flugfólk þurfi að hittast á erfiðum tímum. Félagar eru hvattir til að koma við í kaffið á leiðinni í Skerjó. Fyrir þá sem ekki vita hvar aðstaðan er, þá er ,,Letigarður" stakt hús á neðra bílastæði Flugfélags Íslands (rétt sunnan við Marvin).