Góðir gestir á Sandskeiði

 

Vinsælt er að fljúga með vini og gesti frá Sandskeiði. Fyrir nokkrum dögum flaug Kristján Sveinbjörnsson með nokkra skandinavíska vini. Þar var á meðal Maja Panduro þingmaður í Danmörku og Anne Vang borgarfulltrúi í Köpen. Einnig flaug hann með sænskan vin sinn Torbjörn Karlsson og dóttur hans Ellen Löfquist.
Var flogið útsýnisflug yfir Bláfjöll, höfuðborgarsvæðið og Hellisheiðarvirkjun á mótorsvifflugu Svifflugfélagsins TF-SAA sem hentar vel til útsýnisflugs.
Gestirnir nutu flugsins og vildi t.d. þingmaðurinn ekki lenda fyrr en vélin var að verða eldsneytislaus. Ekki er vitað til að þingmaður eða borgarfulltrúi hafi áður flogið hjá félaginu.