Flugið á árinu.

Á næstu dögum verða sendir út tölvupóstar til allra félaga með upplýsingum um flug ársins ásamt sundurliðun á greiðslum og viðskiptastöðu. Þeir félagar sem halda að upplýsingar um tölvupóstföng þeirra séu úrelt eru beðnir um að senda póst á svifflug@hotmail.com sem fyrst þannig að hægt sé að leiðrétta upplýsingarnar. Ef einhver hefur ekki fengið tölvupóst fyrir lok næstu viku (7. desember) er hann beðinn um að láta vita á ofangreint póstfang.