Vikan 22. til 28. júní

Vikan var frekar döpur hvað flug áhrærir, kennt var tvö kvöld í vikunni. Á laugadeginum rættist úr veðrinu í eftirmiðdaginn þannig að hægt var að fljúga með gesti félagsins í tengslum við veisluhöld kvöldsins.


Undirritaður er vakinn og sofinn við að afla nýrra nemenda og telur að aldrei sé of snemmt að fá áhuga fyrir svifflugi. Þar af leiðandi fór hann með þessa ungu snót í flug á Duo Discus. Skemmst er frá því að segja að Drífa Hrönn verður örugglega meðal áhugasömustu nemenda efir 10 ár eða svo.