Vefsvæði fyrir félaga

Heil og sæl öll.

Nú er búið að setja upp svæði fyrir félaga þar sem félagar geta skoðað upplýsingar um sig ásamt símaskrá og fleiri upplýsingum um aðra félaga. Sendur var út tölvupóstur til allra fyrir nokkru síðan þar sem beðið var um notandakenni og aðgangsorð. Lagt var til að tölvupóstfang væri notað sem notandakenni. Um það bil 18 póstar komu tilbaka vegna ógildra tölvupóstfanga. 

Þeir sem ekki hafa fengið póst eru beðnir um að senda póst á fridjonb@hotmail.com með upplýsingum um aðgangsorð ef þeir vilja fá aðgang að sínum síðum.

Ég hvet alla til að fara inn á sínar síður og skoða það sem er í boði með því að skrá sig inn vinstra megin á síðunni. Ábendingar um það sem betur má fara skal senda á fridjonb@hotmail.com

Bestu kveðjur,

Friðjón.