Flugsýning Flugmálafélagsins

Flugsýning Flugmálafélags Íslands fer fram á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 25. maí n.k. (sunnudagurinn 26. til vara).  Þeir sem áhuga hafa á að koma að henni á einhvern hátt t.d. flugatriði, stæði á display vinsamlegast hafið samband við stjórn FMÍ hið allra fyrsta þar sem skipulagning er komin í gang. 


Vonumst til að fá sem flesta og sjá ykkur öll á glæsilegri flugsýningu. 

Vinsamlegast sendið póst á netfangið: stjorn@flugmal.is með upplýsingum um hvers þið óskið.