Boðaður er aðalfundur Svifflugfélags Íslands þriðjudaginn 10. mars 2025.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal, sal c, 3. hæð og hefst klukkan 19.
Dagskrá skv. samþykktum félagsins sem sjá má á https://www.svifflug.com/ log-felagsins Þar segir:
1. Skýrsla um starfsemi félagsins á síðasta starfsári.
2. Reikningar lagðir fram til samþykktar.
3. Kosning formanns, meðstjórnenda og endurskoðenda.
4. Innganga nýrra félaga og samþykkt þeirra.
5. Kosning fulltrúa á þing FMÍ það ár sem þing og aðalfundur fara saman.
6. Tillögur teknar til meðferðar.
7. Ákvörðun inntökugjalds og árgjalds félagsins.
8. Önnur mál.
Úr stjórn ganga Kristín Sveiney Baldursdóttir, Þórdís Ása Þórisdóttir og Friðjón Bjarnason.
Daníel H. Snorrason gefur kost á sér í áframhaldandi starf formanns félagsins.
Öðrum er frjálst að gefa kost á sér í samræmi við samþykktir félagsins.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn og taka þátt í að móta starfsemi félagsins.
Fyrir hönd stjórnar,
Daníel H. Snorrason, formaður