Félagsfundur 16. apríl

Þriðjudagskvöldið 16. apríl verður Steinþór Skúlason með fyrirlestur sem nefnist "Keppni á Opna Norska meistaramótinu í svifflugi 2012 & hugleiðingar um yfirlandsflug". Fyrirlesturinn verður í húsi ÍSÍ við Engjaveg 6, í E sal og hefst klukkan 20.00.

Þetta er kjörið tækifæri til að kynna áhugasömum svifflug. Félagar fjölmennið!