Mótorsviffluga á BIRK

 

Það er ekki oft sem svifflugur svífa til okkar frá meginlandinu. Einhverjir myndu einfaldlega pakka vélinni inn, skella í gám og láta fara vel um sig á Saga Class. Sannir svifflugsmenn virðast þó hafa lent á  Reykjavíkurflugvelli, þar sem mótorsviffluga af gerðinni STEMME er tryggilega tjóðruð og vel varin gegn haustlægðunum. Vélin kom til landsins fyrir nokkrum dögum og væri gaman að fá nánari upplýsingar um þetta ferðalag og hvaða flugkappar séu þarna á ferð.