Áttu góða mynd?

Nú fer hver að verða síðastur til að eiga möguleika á að senda inn mynd í dagatalið. Þó nokkuð er til en nú er Árni að leita að nýlegum myndum, segjum seinni hluta síðustu aldar fram til dagsins í dag.

Fyrir þá sem ætla að vera með er best að velja nokkrar góðar og koma til Árna gjaldkera sem fyrst. Gaman væri að fá t.d. vetrarmyndir, myndir af svifflugum á lofti og stemmingsmyndir, t.d. teknar að kvöldi til og auðvitað hvaðeina sem gleður augað.

Flettið endilega í gegnum albúmin ykkar og sendið inn góðar ljósmyndir.

Ritstj.