Flugdagur 5. júní

 

Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum að á morgun 5. júní verður haldinn flugdagur á Reykjavíkurflugvelli. Svifflugfélag Íslands verður að öllum líkindum með Duo Discus og Dimonuna á svæðinu. Einnig stendur til að ASK 21 fljúgi. Turnbíllinn verður til staðar og mun Tómas Waage verða kynnir dagsins. Svæðið verður opnað um hádegið og dagskrárlok fyrirhuguð um fjögurleytið. Dagskráin verður væntanlega kynnt að öðru leyti í blöðunum.

Svifflugmenn fjölmennið.