Thoroddsen bikarinn - breytt dagsetning

Eins og fram hefur komið hér á síðunni stóð til að halda lendingakeppni til minningar um Atla Thoroddsen en vegna veðurs var henni frestað um viku. Nú hefur sá tími verið styttur og mun keppnin verða haldin á Sandskeiði á morgun þriðjudag og hefjast kl. 18:00.  Keppendur og gestir eru hvattir til að mæta tímanlega eða klukkustund fyrr. Boðið verður upp á veitingar.