Vikan 7. til 13. júní

Heldur var þessi vika tíðindalítil, flogið var á mánudag, þriðjudag og föstudag auk eins flugs sem Kalli fór á TF-SBS á sunnudag. Einna skástur var föstudagurinn, þá voru farin þrjú flug sem voru lengri en ein klukkustund. Farin voru nokkur kynnisflug og einn nemandi bættist í hópinn.