Vefurinn er fluttur

Vefstjóri biðst afsökunar á því að hafa aftengt Svif.is án þess að tilkynna það rækilega fyrirfram. Unnið er að því að koma upp tengingu sem beinir svif.is á svifflug.com.

Framtíðarvefur Svifflugfélags Íslands verður á svifflug.com þannig að notendur eru beðnir um að nota það veffang framvegis. Svif.is verður síðan endanlega aftengt síðar. Þetta kemur til útaf því að vefurinn hefur verið fluttur á nýjan vefþjón sem er staðsettur í Svíþjóð eftir því sem best er vitað.

Vefstjóra finnst rétt að halda til haga að þessi vefur var settur upp að frumkvæði Þóris Indriðasonar á veffanginu svif.is sem er í eigu hans. Kunnum við Þóri bestu þakkir fyrir þetta framtak.