Aðvörun vegna athugasemda

 

Sæl öll.

Eins og sum ykkar hafa orðið vör við hafa verið settar inn athugasemdir við nokkrar af fréttunum á síðunni. Þetta eru skrýtnar athugasemdir á ensku sem segja svosem ekki neitt. Sumar af þessum athugasemdum innihalda hlekki á aðrar vefsíður. Þessir hlekkir eru óvirkir en það er hægt að afrita þá og líma síðan i vafrarnum (copy paste IP address).

Ég mæli eindregið gegn því að þessir hlekkir séu notaðir vegna þess að við vitum ekki hvað þeir innihalda. Það er alveg hugsanlegt að einhverjir þeirra kalli á vírus. 

Þessar athugasemdir eru saklausar, svo fremi sem enginn freistast til að sjá hvað liggur að baki hlekkjunum, reyndar eru þær  ákaflega hvimleiðar.

Við erum að vinna í uppfærslu á síðunni þar sem meðal annars verður tekið á þessum málum. Sendið mér endilega póst á fridjonb@hotmail.com ef þið hafið eitthvað til málanna að leggja.

Bestu kveðjur,

Friðjón.