Félagsfundur

Góðir félagar

Félagsfundur Svifflugfélagsins verður haldinn nú næstkomandi þriðjudag 7. febrúar kl. 20.00.
Fundurinn er haldinn í fundarsal ÍSÍ í Laugardal.

Dagskrá:
Leifur Magnússon sýnir myndir úr svifflugi á Íslandi og erlendis árin 1957-1982.
Leifur er margfaldur Íslandsmeistari í svifflugi og mun hann segja frá þessum viðburðarríka tíma í svifflugsögunni.


Við minnum á vinnudagana á laugardögum í Skerjó.  Einnig á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum.
Mörg verkefni bíða.

Stjórnin.