Sérstakt afmælismerki

 

 

Í tilefni 75 ára afmælis Svifflugfélags Íslands hefur verið útbúið sérstakt merki. Baldur J. Baldursson, félagi í SFÍ hannaði það og er álit manna að mjög vel hafi tekist til. Félagið lét síðan útbúa barmmerki með þessari hönnun Baldurs. Nú er barmmerkið komið í sölu í Harðarskála. Hægt er að kaupa merkið stakt á 700 krónur eða með dagatali og þá á 2.500 kr. fyrir dagatal og barmmerki. Verðinu er haldið í lágmarki og víst er að fyrstur kemur fyrstur fær því hvortveggja var framleitt í takmörkuðu upplagi. Vefstjóri setur 75 ára merkið á forsíðu svifflug.com við fyrsta tækifæri.

Ritstj.