Nýir svifflugmenn

Í sumar hafa tveir nemendur lokið sólóprófi í svifflugi, þeir Bergur Theodórsson og Sigurbergur G. Ragnarsson. Við óskum þeim til hamingju með áfangann og vonumst til að þeir ljúki B og C áfanga sem fyrst. Hér má sjá Sigurberg eftir fyrsta sólóflugið með A merkið í barminum.