Aðalfundur Svifflugfélagsins.

Minnum á aðalfund félagsins næsta laugardagi, 27. febrúar, í sal Álftanesskóla kl. 14.00. Vinsamlegast athugið að um nýjan fundarstað er að ræða en skólinn er við hlið Íþróttamiðstöðvarinnar.

Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf, sjá lög félagsins (hér á síðunni). Kaffi og meðlæti verða á boðstólunum. Þá eru veittar viðurkenningar fyrir afrek sumarsins.

 

Stjórnin

 

Athugið að fundarboð þetta er í ár rafrænt, þ.e. birt hér á heimasíðunni og sent sem sms í gemsa félaga. Það væri ágæt að láta Einar Ragnarsson s. 669 9814 vita ef ykkur er kunnugt um breytt gemsanúmer hjá félagsmönnum og jafnvel þá vita (ef einhver er) sem gætu misst af boðuninni á þennan hátt.