Gestur með góðan smekk

Stebbi var afar ánægður með að hafa ,,loksins” saumað merkið á húfuna. Fleirum fannst höfuðfatið flott og ljóst er að óboðinn gestur í Harðarskála reyndi sem hann gat að narta merkið af, hvað hann hefði gert hefði það tekist er ekki gott að segja. Notað merkið sem rúmteppi? Hver veit? Öruggt er að þeir feðgar, Stebbi og Daníel, geta ekki lagt hvað sem er frá sér í skálanum enda eiga þeir langflottustu svifflugpeysurnar. Kveðja, ritstjóri.