Á þessu ári ætla ég að ...

Hefurðu mikinn áhuga á flugi en ekki lagt í að mæta upp á Sandskeið og prófa svifflug? Um áramót setjast margir niður og láta sig dreyma. Sumir ætla að prófa eitthvað nýtt en aðrir stefna fram á við og vilja til dæmis læra til einkaflugmanns eða atvinnuflugmanns.Er tími til að bæta svifflugi á listann fyrir næsta sumar? Þú getur fylgst með okkur á fésbókinni, sjá Svifflugfélag Íslands og sent fyrirspurnir. Við viljum taka vel á móti áhugasömum og gjarnan sjá bæði grasrótina í flugi koma sem og atvinnuflugmenn.

Kveðja, Þórhildur Ída