Barmmerki og dagatal - SFÍ 75 ára

 

Til stendur að hella uppá könnuna og baka vöfflur laugardaginn 11. júní kl. 17:00 og fagna bæði barmmerki og dagatali sem SFÍ hefur látið útbúa. Tilefnið er 75 ára afmæli félagsins. Allir áhugamenn um svifflug eru velkomnir.

Formaðurinn spáir að viðri vel til svifflugs næstu daga og vonast til að sjá sem flesta á Sandskeiði. Hann lætur þess getið að skálanum hefur verið breytt lítils háttar.

Kveðja, ritstjóri.

 

 Yfirkennarinn mátar sófann á nýja staðnum. Jafn þægilegur!

Benni er á kafi í bókmenntum.

 

 

 

Tómas fær hugmynd.

Drífum þetta í skýlið.