Myndir frá félagsfundi

 

Á þriðja tug manna mætti á félagsfund í vikunni. Þórmundur Sigurbjarnason sýndi slidesmyndir frá gamla tímanum og heyra mátti að þeir sem höfðu verið í svifflugi á þeim tíma glöddust. Stemming var í loftinu, þegar rætt var um hinar ýmsu persónur, gömlu góðu vélarnar og mót sem voru haldin og jafnvel utanlandsferðir sem festar höfðu verið á filmu. Margt var hægt að spá í. Ýmsir myndarlegir menn þekktust enda lítillega breyttir.

Ritstjóri.