Hella

 

Kristján Sveinbjörnsson sagði daginn í dag hafa verið sérlega góðan. Þórir Indriðason sendi súlurit sem sýnir stöðuna eftir tvo flugdaga. Morgundagurinn, sunnudagur gæti orðið góður dagur. Það er um að gera að skreppa á Hellu og vera snemma ef menn vilja fylgjast með okkar mönnum. Miðað við þessar upplýsingar er TF-STK í fyrsta sæti, TF-SAX í öðru og TF-SAL í því þriðja.