Fundargerð aðalfundar 2026

Aðalfundur Svifflugfélag Íslands var haldinn í sal 3c, 3h. í húsakynnum Íþróttasambands Íslands þriðjudaginn 10. mars 2026 í Laugardal og hófst hann kl. 1900. 

Aðalfundur Svifflugfélag Íslands var haldinn í sal 3c, 3h. í húsakynnum Íþróttasambands Íslands þriðjudaginn 10. mars 2026 í Laugardal og hófst hann kl. 1900. 

Samkvæmt lögum félagsins skal fundargerð send fundarmönnum eða birt á heimasíðu félagsins innan tveggja vikna frá fundi. Fundarmenn hafa tvær vikur til að gera athugasemdir við hana.

Þetta var gert:

  1. Formaðurinn Daníel Snorrason bauð fundarmenn velkomna og setti fundinn. Lagði hann til að Steinþór Skúlason yrði fundarstjóri og Ólafur Briem yrði fundarritari.  Var það samþykkt með lófaklappi.

 

  1. Fundarstjóri kvað löglega til fundarins boðað með réttum fyrirvara og að nægilega margir væru mættir til að fundurinn væri löglegur (2/5 af atkvæðabærum félögum).

 

  1. Daníel Snorrason formaður gerði grein fyrir skýrslu stjórnar. Kom fram í máli hans að veðurfarsleg skilyrði hefðu verið ákjósanleg og mikið flogið þetta sumar enda vorað snemma.  Fjórir nemar luku einflugsprófi.  Samstarf við Samgöngustofu hefur gengið vel og hafa SFA og SFÍ stefnt að því að bjóða upp á bókleg námskeið í vetur til Skírteinis svifflugmanns.  Þá voru nefnd vindmillumál, svifflugkaup (TF-SOL), viðhaldsmál og kaup á rafmagnsbíl í stað „Svörtu Maríu“.  Kennaranámskeið er í undirbúningi.  SFÍ verður 90 ára í ár og til stendur að halda upp á það í ágúst á Sandskeiði og flughátíð FMÍ verður haldin í maí.

 

  1. Friðjón Bjarnason gjaldkeri gerði grein fyrir ársreikningi félagsins. Í máli hans kom fram að reksturinn hafi gengið vel.  Svifflugpakkinn vinsæll og margir flugdagar skiluðu sér í góðum tekjum.  Kostnaðurinn var hlutfallslega lægri en áður m.a. vegna lækkunar á tryggingariðgjöldum.  Hagnaður reyndist með ágætum eða 2,5 mkr. og eigið fé nú um 35 mkr.  Bjarni Friðjónsson og Hólmgeir Guðmundsson þökkuðu fyrir greinargóða kynningu og farsælar niðurstöður reikninga. Karl Norðdahl spurði um TF-SOL kaupin og hvort þetta hefðu verið góð kaup.  Gjaldkeri sagði sátt ríkja um kaupin og verðið.

 

  1. Kosning formanns: Daníel Snorrason var kjörinn áfram formaður með lófaklappi.

 

  1. Kosning stjórnar: Ásgeir Bjarnason og Einar Ragnarsson verða áfram en kjósa þurfti í þau sæti sem losnuðu í ár, þeirra Ólafs Gíslasonar, Friðjóns Bjarnasonar, Þórdísar Ásu Þórisdóttur og Kristínar Baldursdóttur.   Friðjón og Þórdís gáfu kost á sér áfram til tveggja ára og tillaga var lögð fram um Guðstein Þór Valdimarsson til tveggja ára og Hólmgeir Guðmundsson til eins árs.  Samþykkt einróma.

 

 

  1. Kosning skoðunarmanna: Benedikt Ragnarsson og Kristján Jakobsson voru þar fyrir.  Eyjólfur Guðmundsson og Benedikt Ragnarsson gáfu kost á sér.  Samþykktir með lófaklappi.

 

  1. Samþykkt nýrra félaga (skilyrt er að þeir hafi lokið einflugsprófi). Lagður var fram listi yfir nýja félaga, þá Aron Bjarka, Alexander Tryggva, Jakob Benjamín, Halldóru Ragnarsdóttur og Gunnar Thorarensen.  Samþykktur samhljóða.

 

 

  1. Kosning fulltrúa á fund Ársfund FMÍ: Samþykkt var einróma að vísa ákvörðuninni til stjórnar.

 

  1. Ákvörðun inntökugjalds og árgjalds: Inntökugjald er ekkert. Tillaga stjórnar var sú að hafa félagsgjaldið óbreytt í 40 þkr. og að þeir sem væri 18 ára og yngri og 67 ára og eldri fengju 10 þkr. afslátt.  Samþykkt samhljóða.

 

  1. Tillögur fyrir fundinn – Engar lágu fyrir.

 

 

  1. Önnur mál.

 

Jón Hörður Jónsson kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á tímamótum hjá félaginu með nýafstöðnu samþykki á nýjum félögum.  Nú hefði nefnilega gengið í raðir félagsmanna í fyrsta sinn flugmaður sem ekki hefur próf á svifflugu heldur á mótórsvifflugu (TMG).  Kemur hann úr röðum vélflugmanna.  Hér væri tekið kærkomið framfaraskref, að fá inn félaga sem fara ekki hefðbundna leiði í svifflugnámi.  Stendur til að þessi félagi læri svifflug næsta sumar.  Samgöngustofa þurfti að útskrifa prófdómara sérstaklega til þess arna, því svifflugskennarar má ekki útskrifa vélflugsmenn á TMG.  Þarna þurfti að koma til vélflugkennari með réttindi til að kenna á TMG og voru þeir Orri Eiríksson og Jón Hörður sem fengu þau réttindi nýlega staðfest. 

 

Baldur Baldursson kvaddi sér hljóðs að beiðni stjórnar og gerði grein fyrir árangri umsagna um Vindorkuver ON á Mosfellsheiði sem eru í matsferli.  Þá ræddi hann um rammaáætlunargerð og árangur af ábendingum frá flugaðilum, að sérstakt mat sé lagt á áhrif af völdum vindorkuvera á flugstarfsemi. 

 

Eyjólfur Guðmundsson spurði um undirbúningi fyrir 90 ára afmælið.  Kristján Sveinbjörnsson ræddi viðhaldsmál á einkasvifflugum og að reglugerðir settu eigendum þeirra rekstrarlegar skoður.  Telur hann mikilvægt að ráðuneytið beiti sér fyrir einföldun á skoðunarmálum.  Ræddi hann svo almennt um rekstur svifflugs á Akureyri og á Sandskeiði, meðal annars kaup á svifflugum.  Gerði hann grein fyrir kaupum sínum, Jóns Magnússonar og Sigtryggs Sigtryggssonar (Sippó) á DG400 sem til stendur að verði staðsett fyrir norðan.

 

Daníel formaður kvaddi sér hljóðs og sagði frá því að norðanmenn hafi óskað eftir að leigja eina LS-4.  Það mál er í skoðun.  Friðjón gjaldkeri lét vita að Bjarni Friðjónsson hafi séð um hugbúnaðarmál í tengslum við bóklegt nám í Svifflugi.  Bjarni greindi frá þessu og að nú gætu nemendur skráð sig í próf og fengju þá öll efnisleg gögn og eldri próf í hendur og væru nokkuð sjálbærir um menntun sína.  Fyrirmynd er fengin frá norðurlöndum og samstarf hefur verið við norðlendinga (Sippó). 

 

Jón Hörður Jónsson greind frá því að SFA kenndi undir DTO leyfi SFÍ og ábyrgðaraðilar eru Daníel Snorrason, hann sjálfur og Sippó.  Námskeið hefur þegar verið haldið fyrir norðan fyrir vélflugmenn.  Samgöngustofa gerði úttekt í haust á DTO leyfi og gerði hún 3 athugasemdir og ein varðar nemendaskráningar sem þarf að skoða sérstaklega.  Þá nefndi hann að liðin væru 3 ár frá síðasta bóklega kennaranámskeiði og að líklega yrði eitt slíkt haldið í apríl og nú á vegum félagsins SFÍ.   Til viðbótar þessu verður í maí haldið prófdómaranámskeið á vegum Samgöngustofu fyrir alla kennara SFÍ, enda væru þeir með prófdómararéttindi.  Matthías Arngrímsson kvaddi sér hljóðs í þessu sambandi og gerði grein fyrir ATO reynslu sinni og mikilvægu samstarfi við Samgöngustofu, en hann hefur verið skólastjóri Flugskólans í Geirfuglinum.  Karl Norðdahl ræddi nemendaskrána og hvar hún væri aðgengileg og áskoranir í kringum uppfærslu á upplýsingum sem þar eiga heima.  Friðjón Bjarnason staðfesti að startstjóri eigi að ganga frá nemendaskrá í „læsta kassann“ eftir áritanir kennara.  Jón Hörður kom inn á Persónuverndarlöggjöf og minnti á að Samgöngustofan hafi krafist þess að „kassinn“ væri læstur.  Baldur Baldursson benti á að í skráningarkerfi félagsins á vefsíðunni væri gott að koma á fót ábendingarsíðu um bilanir og viðhald.

 

  1. Fleira ekki gert, formaður sleit fundi kl 2022 og bauð til kaffisamsætis um þær rúllutertur og kleinur sem biðu fundarmanna.

Leave a comment

Please note that we won't show your email to others, or use it for sending unwanted emails. We will only use it to render your Gravatar image and to validate you as a real person.