Níels Kristjánsson.

Sú harmafregn barst frá Kanada í morgun (18.04.2007), að frábær félagi og vinur, Níels Kristjánsson, væri allur. Hann lést úr hjartaslagi sl. nótt á heimili sínu í Calgary í Kanada.

Þótt við félagarnir í Svifflugfélagi Íslands höfum ekki orðið mikið varir við þennan góða vin okkar undanfarin ár, þar sem hann bjó og starfaði í Kanda, kom hann þó í heimsókn til okkar á Sandskeið á sumri hverju og flaug og skemmti sér og okkur hinum, sem aðnjótandi urðum návistar þessa frábæra manns. Svifflugfélag Íslands og félagarnir allir senda eftirlifandi eiginkonu, syni, systkinum og fjölskyldunni allri dýpstu samúðarkveðjur.