Kæra félagsfólk.
Þá er sumrinu lokið, skýlin um það bil full og tæki komin í Skerjafjörð. Í tlefni af þessum tímamótum er hér með blásið til fundar á Sandskeiði laugardaginn 26. október klukkan 11.
Þann 15. september sl. kom maður að nafni Andrés Þórarinsson í heimsókn á Sandskeið. Tilgangur heimsóknarinnar var að taka myndir af svifflugum og svifflugi. Á fundinum ætlar hann að sýna okkur myndirnar en hver ein þeirra er listaverk.