Með því að notast eingöngu við náttúruöflin er hægt að fljúga líkt og fuglinn frjáls um himininn án vélarafls.
Það geta allir stundað svifflug!
Í félaginu er fólk á öllum aldri en hægt er að hefja svifflug nám við 13 ára aldur.
Fyrir þá sem stefna á atvinnuflug er svifflug góður grunnur sem eykur flughæfni.
Flugtímar í svifflugi eru metnir að hluta til einka- og atvinnuflugsréttinda.
Flogið er öll kvöld á virkum dögum og allar helgar yfir sumartímann þegar veður leyfir.
Við hvetjum þig til þess að koma til okkar á Sandskeið og fá að prófa svifflug með reyndum svifflugkennara í tveggja sæta svifflugu.
Svifflugfélag Íslands er með starfsemi sína á Sandskeiði sem er við Suðurlandsveginn þar sem ekið er inn í Bláfjöll. Um 10 km frá bæjarmörkum.
